01júní

S A U M Ó - jeij

nei hæ.

ef mér skjátlast ekki þá er ég með næsta saumó sem samkvæmt vandlega skipulögðu plani fellur á miðvikudaginn 3.júní

Hann mun því hefjast kl 21.00 um kveldið og við skulum öll lifa í voninni að mér takist að reiða fram eitthvað gúmmelaði á tímabilinu frá 17-21. haha

EN til að summa þetta upp svo engar upplýsingar fari forgörðum:

hvenær: Miðvikudagur 3.júní
kl: 21.00
hvar: Rauðhömrum 3, grafarvogi
hvað: Hám + Spjall

Gleðikveðja, Laufey Rún.

01. júní 2009 klukkan 13:29
Pigeklub
8 athugasemdir
22maí

Hæ ástir....

Yo hós,


Er ekki komið að einhverri gleði meðal vor.....??

kveðja,
Soffía
22. maí 2009 klukkan 17:54
Pigeklub
2 athugasemdir
06maí

Saumó !

jæja nú er komið að saumó hjá mér á morgun kl 8 álavkísl 78 110 RVK :)

sjáumst á morgun !

06. maí 2009 klukkan 13:40
Pigeklub
13 athugasemdir
30apríl

úbbosí !

sorry stelpur mínar.... smá miskilingur á dagsetningum í gangi ! :D hann er víst ekki fyrr en í næstu viku :P

Kv Jóhanna
30. apríl 2009 klukkan 11:16
Pigeklub
9 athugasemdir
29apríl

saumó !!

sælar dömur mínar !

Það fer að styttast í lokin á þessari önn !! :) einkunnirnar hjá okkur HR ingum eru byrjaðar að hlaðast inn og ég vona að ykkur prófgellum gangi vel !
en það sem ég vildi sagt hafa er að Saumó verður hjá mér á morgun, fimmtudag, uppúr 8. Þetta er samt sem áður birt með fyrirvara því ég veit ekki alveg hvernig verkefnisvinnan verður á morgun.. vona að við getum klárað það sem þarf að gera fyrir föstudaginn ...

Brjótiði fót á morgun stelpur mínar (þær sem eru að fara í próf, hinar mega sleppa því) og rúlliði þessu upp !

hasarkveðjur
Jóhanna Ýr

29. apríl 2009 klukkan 23:50
Pigeklub
1 athugasemd
09apríl

smá fréttir

jaeja elskurnar minar. fyrst vil eg byrja a tvi ad monta mig a tvi ad eg eva johannsdottir VANN ipod dj keppni herna uti i cisv austurriki !! folkid herna elskadi login sem eg spiladi... heil 6 log sem mer tokst ad finna sem voru ekki roleg eda kantry haha.

en ferdalagid hingad tok ekkert sma langan tima. vaknadi kl 4, for i flugrutuna, for i flug 7:40, lenti a london heathrow... kl ordin 12 og eg massa svong. keypti midann minn til london stansted og settist a kaffihus inni a rutustodinni til ad fa mer ad eta. keypti mer agaetis samloku sem konan skar i tvennt fyrir mig... eg held a odrum hlutanum tegar dufa flygur inn, sest a bordid mitt og byrjar ad narta i samlokuna mina. hvi eg.. hvi gerast svona hlutir fyrir mig? eg akvad ad snerta ekki ta samloku eftir ad dufan for sina leid, tratt fyrir mikla svengd, og helt af stad ut i rutu. maeti eldhress til london stansted og kynnist tar irskum hjonum og vid faum okkur ol saman. eg buin ad spurjast fyrir hvar mitt hlid se og 10 min adur en hlidid lokast held eg af stad i att ad hlidi 84, sem var ekki rett hlid, ekki a rettum stad a flugvellinum og tilheyrdi ekki einu sinni minu flugfelagi! 1 min i lokun a minu hlidi tegar eg hendist af stad... veik btw med 39 stiga hita.. i att a minu hlidi sem var i alveg i hinum enda flugvallarins. sveitt og eldheit maeti eg 6 min fyrir brottfor ad hlidinu og se ad tad er long rod og enginn asi a folki. flugid fer 2 min eftir aaetlun og eg nae ad anda lettar. lendi ferskari en lifid i bratislava kl 22 ad stadartima og fer med rutu til vienna. tek tar tvaer lestar til kaplaplatz tvi tar beid min ungur herramadur og eg atti ad gista hja honum. tegar voru 3 stelpur fra cisv svitjod sofandi hja honum. morguninn eftir forum vid svo med 3 klst lest til graz tar sem eg er nuna.. enn veik og ofsa treytt.. maetti jafnvel segja ad eg vaeri pinku bugud!!

folkid herna er mjog forvitid um paskaeggid mitt og geta ekki bedid eftir ad eg opni tad.

knus a ykkur allar.

ykkar eva joa
09. apríl 2009 klukkan 00:47
Pigeklub
8 athugasemdir
30mars

Saumó

Sælar

Það er gleði saumó hjá mér í einstæðings gleðiíbúð pigeklub á miðvikudaginn, mæting kl 8.
Ýmislegt góðgæti í boði, ekki samt matur heldur meira í sætu deildinni !

Hlakka til að sjá ykkur allar

luv
Jóhanna Margrét 

 
30. mars 2009 klukkan 13:25
Pigeklub
9 athugasemdir
20mars

Þreytt á bloggleysi

Jæja,
Nú ákvað ég að taka málin í mínar heldur. Bloggleysið á þessari síðu er slíkt að mig hryllir við því.
Ég sit nú í oofsa leiðinlegum tíma að hlusta á fyrirlestur um grænt bókhald landsvirkjunar (Y) - þetta er thumbs up á msn, mun jafnvel nota þetta merki oftar svo þið skuluð leggja það á minnið!

Ég ætla samt ekki að íþyngja ykkur með skólatali heldur ætla ég að tala um e-ð annað.
Veit svo sem ekki hvað... en..

hmm...
Já ég er að fara í reunion grunnskólans míns á laugardaginn. Held það verði nokkuð gaman þar sem maður er búin að halda ágætu sambandi við svona ágætan hluta þessa hóps. Þau eru hress þ.a. ég geri ráð fyrir þetta verði hresst kvöld, og til að tryggja það þá hafði ég hugsað mér að vera helluð. Það klikkar aldrei;) (Y)
Þarf reyndar að vakna snemma til að hanna eina vindmyllu á sun, ég hlít að redda því, býst hvort sem er við  því að vera dáin um rúmlega eitt þar sem djammþolið er heldur betur farið að slakna!

Ég er líka farin að halda neyslubókhald eftir 10.þús krónurnar voru farnar að fjúka burt og aldrei keypti ég mér neitt! Búin að búa til rosa fínt excel skjal að hætti Jóu M og fylli inn samviskusamlega og set mismunandi liti við mat og bensín og svona rosa fínt.
Ég held samt að maður verði nískur á að halda svona bókhald. Ég finn reyndar ekki fyrir því núna, en maður fer samt alltaf aðeins að passa sig þegar maður er svona meðvitaður um neysluna.
Uhh  þetta er leiðnlegt umræðuefni....

Mér finnst þetta ár líður áfram með ofsahraða því ég veit ekki betur en að það sé páskafrí eftir ca. 2 vikur!
Vonandi verður tanveður því ég fer bráðum að hverfa!

jæja nóg í bili
Kv. Bloggmarta

oog já þetta er ekkert rosa hresst blogg, maður er orðin svo ryðgaður...;)

ein "funny picture" frá google
http://www.zefhemel.com/upload/2008/02/funny-cat.jpg

20. mars 2009 klukkan 14:34
Pigeklub
5 athugasemdir
02mars

SAUMÓ Á MIÐVIKUDAGINN :D

Hæ elskurnar ;)

Það er saumó hjá mér núna á miðvikudaginn og ég ætla að hafa MAT fyrir ykkur ;) þannig þið verðið að koma svangar! hehe

Mæting klukkan 19 heim til mín...

Endilega látið mig síðan vita ef þið komist ekki upp á það að kaupa ekki of mikinn mat...

Hlakka til að sjá ykkur :D

Bestu kveðjur,

Helga Dagný ;)
02. mars 2009 klukkan 16:34
Pigeklub
21 athugasemd
18febrúar

BíóBíóBíóBíó

Við vorum að fá þá snilldarhugmynd í hausinn að við stúlkur myndum skella okkur saman á He's just not that into you á föstudagskvöldið í Smárabíó kl 22.40. Þess má geta að þetta er FRUMSÝNING myndarinnar ;)

Væri ekki sniðugt að fara út að borða á undan, t.d Stælinn eða eitthvað...

Hvað segið þið um þetta plan?

Kv.
Magga og Helga


18. febrúar 2009 klukkan 12:14
Pigeklub
16 athugasemdir

Könnun

Árshátíð Pigeklub 2009 :) (þetta eru allt laugardagar)

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Pigeklub

Við erum 9 piger sem höfum öll sömu markmiðin... heimsyfirráð, djamm og stanslausa gleði.

Eva, Helga, Jóhanna Ýr, Jóhanna Margrét, Laufey, Signý, Magga, Marta og Soffía blogga hér af einstakri snilld...